Um okkur

Helginn er þáttur á netinu þar sem Helgi Hrafn og Helgi Steinar setjast í sófann og ræða um fréttir og efni af netinu. Þeir fá til sín gesti, prufa nýjustu tækni og ræða um það sem gengur og gerist að hverju sinni. Helgi Hrafn er verkefnastjóri hjá Stefnu Hubúnaðarhúsi og Helgi Steinar er ljósmyndari, ljósamaður og verslunarstjóri NOVA á Akureyri. Nafnarnir hafa verið vinir í mörg ár og hafa upplifað margt saman. Þeir eiga eftir að segja frá öllu milli himins og jarðar í komandi þáttum.

Hugmyndin að Helginn kom upphaflega þegar Helgi Hrafn sýndi Helga Steinari netþáttinn Diggnation og þá fengum þeir félagar þá flugu í hausinn að gera video blog. Helgarnir höfðu báðir verið í því að blogga og gefist upp á því, með löngum pásum. Síðan kom Örlygur Hnefill einhvern veginn inní umræðuna og blandaði þessu við Akureyri.net og stækkaði video bloggið yfir í stærri þátt á netinu. Eftir það var í raun varla snúið við, það var búið að panta hönnun á merki, myndatökumenn búnir að taka frá daga í upptökur og konurnar okkar búnar að panta sér tíma í nudd.

Nú er þetta orðið að veruleika. Þeir félagar skipuleggja hvern þáttin á eftir öðrum í sínum frítíma og fyrirtækin farin að hafa áhuga á því að auglýsa í þáttunum. Ef þú hefur áhuga á að auglýsa í þættinum eða bara að senda okkur eitthvað efni, endilega hafðu samband.

Við erum á eftirfarandi samfélagsvefum:

Athugið!

Þátturinn getur innihaldið viðkvæmt efni sem ekki er við hæfi barna yngri en 14.

Facebook

Póstlisti